The China Study
Höfundar: T. Colin Campbell, PhD, og Thomas M. Campbell II The China Study er nefnd eftir einni stærstu faraldsfræðilegu rannsókn sem gerð hefur verið í heiminum á sambandi mataræðis og tíðni sjúkdóma.
Í þessari bók er fjallað um ýmsa sjúkdóma sem tengjast lífsstílsvenjum okkar s.s. hjarta- og æðasjúkdóma, krabbamein, sjálfsofnæmissjúkdóma, sykursýki ofl. Sterk tengsl eru greinilega á milli þess sem við látum inn fyrir okkar varið og heilsu okkar. Þessi bók ætti að vera skyldulesning fyrir alla sem hafa áhuga á heilbrigði, ekki síst lækna og aðra þá sem annast og ráðleggja öðrum um holla lifnaðarhætti.
Anti Cancer
Höfundur: David Servan-Schreiber, MD, PhD
Anti Cancer fjallar um sögu læknis sem greindist með heilaæxli þegar hann var 31 árs. David Servan-Schreiber fjallar um baráttuna við krabbamein frá ýmsum hliðum og brúar bilið á milli vestrænnar læknisfræði og þess sem við sjálf getum gert til að styðja við meðferðina og auka líkur á bata. David talar bæði um mataræði og sérstaka eiginleika ýmsra fæðutegunda sem vinna gegn myndun krabbameina og hamla vexti æxla. Auk þess talar hann um persónueinkenni og viðhorf sem geta hjálpað fólki í baráttunni gegn krabbameini.
Healthy at 100
Höfundur: John Robbins Skemmtileg og jákvæð bók um það hvernig hægt er með heilbrigðum lífsstíl að lifa bæði lengra og betra lífi. Í bókinni er skoðað hvað það er sem þjóðarbrot eiga sameiginlegt þar sem 100 ára aldur þykir ekkert tiltökumál. Bókin ber saman þjóðarbrot frá ólíkum landsvæðum þar sem 100 ára heilbrigði er algengara en almennt gerist í okkar vestræna heimi.
Foods That Fight Cancer
Höfundar: Richard Beliveau, PhD og Denis Gingras, PhD Afar fróðleg bók um tengsl mataræðis og krabbameina. Richard Beliveau PhD var spurður ráða af aðstandendum krabbameinsveikra um hvað þau gætu gert til að hjálpa til í baráttunni við krabbameinið. Af veikum mætti ráðlagði hann breytt mataræði þrátt fyrir að vera sjálfur ekki sannfærður um að það breytti miklu. Árangurinn kom honum á óvart og nú hefur hann stundað rannsóknir á þessu sviði og skrifað bækur sérstaklega um eiginleika matar sem spornar við krabbameinsmyndun og vexti.
Bragð í baráttunni - matur sem vinnur gegn krabbameini
Höfundar: Richard Beliveau, PhD og Denis Gingras, PhD
Íslenska útgáfan af bókinni Cooking with Foods That Fight Cancer. Bókin, sem er aðgengileg, litrík og listilega hönnuð, hefur að geyma ítarlega umfjöllun um ýmis hráefni í matargerð sem talið er að geti unnið gegn myndun krabbameina. Þar eru einnig að finna yfir 160 gómsætar uppskriftir sem auðvelt er að fara eftir. Með hjálp þessarar bókar getur fólk breytt matarræði sínu og lífsstíl á áhrifaríkan hátt, en slíkt er af mörgum talið afar mikilvægur þáttur í baráttunni gegn krabbameini.
Höfundar bókarinnar eru Richard Béliveau, prófessor í lífefnafræði við Quebec-háskóla í Montreal í Kanada og leiðandi aðili í krabbameinsransóknum þar í landi, og Denis Gingras, sérfræðngur í sameindalíffræði við sama skóla. „Rannsóknir áætla að hægt sé að koma í veg fyrir um þriðjung krabbameinstilvika með réttu mataræði, hreyfingu og með því að halda sér nærri kjörþyngdarmörkum,” segir Oddur Benediktsson, formaður Krabbameinsfélagsins Framfarar í formála bókarinnar. Fjölmargir læknar hafa mælt með bókinni og nýtur boðskapur hennar vaxandi virðingar og viðurkenningar meðal heilbirgðisstétta erlendis.
Hægt er að kaupa bókina í öllum betri bókabúðum og á vef forlagsins (smelltu hér til að kaupa á vefnum)
Cooking with Foods That Fight Cancer
Höfundar: Richard Beliveau, PhD og Denis Gingras, PhD
Enska útgáfan af Bragð í baráttunni - matur sem vinnur gegn krabbameini. Fyrri hluti bókarinnar er stútfullur af fróðlegum upplýsingum um hvernig krabbamein myndast og hvað við getum gert til að sporna við því. Í seinni hluta bókarinnar er svo að finna fjölmargar spennandi uppskriftir að mat sem nærir líkamann og stuðlar að heilbrigði hans á sama tíma og hann gleður bæði augað og bragðlaukana.