Greinar


12. 08 2010 - Ísland og Bretland leiðandi í baráttunni gegn brjóstakrabbameini
Vinaþjóðirnar Ísland og Bretland eru leiðandi í Evrópu, í baráttunni gegn brjóstakrabbameini. Dauðsföllum af völdum brjóstakrabba hefur fækkað mikið í Evrópu á síðustu 20 árum, aðallega vegna betra eftirlits og framfara í meðferð við sjúkdómnum, og þar skara þessar þjóðir framúr.
Skoða nánar
12. 11 2009 - Greinar og viðtöl við krabbameinsgreinda, aðstandendur þeirra og lækna í Bretlandi.
Margverðlaunuð vefsíða sem inniheldur reynslusögur krabbameinsgreindra, aðstandenda og lækna í Bretlandi. Viðtölin eru birt bæði á myndbandsformi í góðum gæðum sem og texta. Viðtölin eru flokkuð niður eftir tegundum krabbameina.
Skoða nánar
06. 05 2009 - Hjálparsímar krabbameinsgreindra í Evrópu
Hvaða spurningar brenna helst á krabbameinsgreindum Evrópubúum? Gunnjóna Una Guðmundsdóttir félagsráðgjafi og verkefnastjóri hjá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins fór síðastliðinn febrúar á áhugaverða ráðstefnu um hjálparsíma í Evrópu. Hér má finna glærusýningu með helstu niðurstöðum ráðstefnunar. Hvað liggur helst á hjarta krabbameinsgreindra Breta, Dana, Finna, Þjóðverja og Ítala?
Skoða nánar
09. 01 2009 - Taktu ábyrgð á lífi þínu.
Hispurslaus grein Atla Thoroddsen um krabbameinsveikindi sín og ákveðið samskiptaleysi meðal lækna sem hann hefur þurft að glíma við á sjúkdómsgöngu sinni. Greinin vakti mikla athygli og varð kveikjan að fréttaumfjöllun ríkisútvarpsins um skort á samráði lækna innan heilbrigðisgeirans.
Skoða nánar
11. 12 2008 - Finnst varla að ég hafi fengið krabbamein
Matthea Sigurðardóttir 31 árs greindist með Totumein í hálsi árið 2005. Þessi hressa stelpa segir frá reynslu sinni af veikindunum og hvernig hún tók á þeim.
Skoða nánar
01. 12 2008 - Nýtt stuðningsfélag fyrir ungt fólk með krabbamein
Grein eftir Hildi Björk Hilmarsdóttur fyrrum formann Krafts sem birtist í Morgunblaðinu í febrúar árið 2000. Hér greinir Hildur frá tildrögum félagsins og markmiðum þess.
Skoða nánar
19. 11 2008 - Núna horfir maður fram á veginn
Eftir að hafa þjáðst af höfuðverk frá 16 ára aldri, greindist Kári Örn Hinriksson 19 ára strákur úr Mosfellsbæ með krabbamein. Í eftirfarandi viðtali lýsir Kári á einlægan hátt glímu sinni við krabbameinið
Skoða nánar
19. 11 2008 - Ég get gert allt sem ég gerði áður
Viðtal við Davíð Jónsson, tvítugan Kvennaskólanema sem greindist 17 ára með beinsarkmein. Hann missti hægri fótinn fyrir ofan hné en lætur það ekki stoppa sig, er daglegur gestur í ræktinni og setur stefnuna á að þeytast um fjöll og firnindi á snjóbretti.
Skoða nánar
02. 11 2008 - Þörf krabbameinssjúklinga fyrir félagslegan stuðning og endurhæfingu að lokinni meðferð á LSH
Grein eftir Gunnjónu Unu Guðmundsdóttur, félagsráðgjafa hjá Krabbameinsfélagi Íslands. Tilgangurinn með þessari rannsókn var að kanna hvaða stuðning krabbameinssjúklingar í krabbameinsmeðferð telja mikilvægan til að ná bata á nýjan leik.
Skoða nánar
18. 06 2008 - Upprifjun í tilefni nýrrar stjórnar
Grein frá Daníel Reynissyni formanni Krafts
Skoða nánar

Veftré | Hafa samband