Stómasamtök Íslands voru stofnuð til að styðja og leiðbeina einstaklingum sem að gengist hafa undir stómaaðgerðir þ.e ristilstóma (colostomy), garnastóma (ileostomy),þvagstóma (urostomy) svo og garnapoka (J-pouch) eða nýblöðruaðgerð. Stóma, garnapoki eða nýblaðra eru ekki sjúkdómar heldur afleiðing nokkurra sjúkdóma, fæðingargalla eða jafnvel slyss. Helstu sjúkdómarnir eru krabbamein í ristli og/eða endaþarmi, krabbamein og sjúkdómar í þvagfærum og bólgusjúkdómarnir sáraristilsbólga (Colitis Ulcerosa) og Crohns sem leggjast á ristil og meltingarveg.
Stómasamtök Íslands voru stofnuð 16. október árið 1980 og fagna því 29 ára starfsafmæli á þessu ári. Þau hafa ávallt verið undir verndarvæng Krabbameinsfélags Íslands og eru eitt af elstu stuðningsfélögum þess. Þá eru Stómasamtök Íslands einnig nýasta aðildarfélagið að Öryrkjabandalagi Íslands. Félagar samtakanna voru 214 árið 2004 og eru kynjahlutföllin nokkuð jöfn. Ekki eru einungis stómaþegar í samtökunum heldur eru einnig læknar, hjúkrunarfræðingar, foreldrar og ættingjar stómaþega. Félagsmenn eru á öllum aldri, barnungir sem fjörgamlir.
Smelltu hér til að komast á vef Stómasamtaka Íslands