Einstök brjóst

Jónína Ósk Lárusdóttir grafískur miðlari fékk hugmyndina af ein-stök-brjóst í apríl á þessu ári. Hugmynd um að setja upp ljósmyndasýningu af brjóstum 100 kvenna og hannaði bolinn ein-stök-brjóst, málefninu til styrktar.

Dagný Erla Gunnarsdóttir hefur starfað með Jónínu Ósk að verkefninu ein-stök-brjóst frá upphafi og komið að skipulagsmálum átaksins.
15.október 2008 var stofnað góðgerðarfélagið ein-stök-brjóst,kt; 541008-1870 af Jónínu Ósk Lárusdóttur og Dagnýju Erlu Gunnarsdóttur.

Til liðs við verkefnið voru meðal annars fengnar:

Íris Jóhannsdóttir ljósmyndanemi við Tækniskólann í Reykjavík. Henni til aðstoðar við hugmyndasmíði, lýsingu og vinnslu mynda var Lilja Matthíasdóttir ljósmyndanemi við Tækniskólann í Reykjavík. Einnig aðstoðaði við myndatökur Matthildur Lárusdóttir nemi á hönnunarbraut við Tækniskólann í Reykjavík.

Smelltu hér til að komast á vef Einstakra brjósta

Veftré | Hafa samband