Ungt fólk sem er í námi þegar það greinist með krabbamein

11. Ungt fólk sem er í námi þegar það greinist með krabbamein

11.1. Tryggingastofnun: Sjúkradagpeningar greiðast til 16 ára og eldri ef tafir verða á námsáfanga vegna sjúkdóms. Grunnvottorð læknis vegna krabbameins og vottorð frá skóla þarf að liggja fyrir. Endurhæfingarlífeyrir greiðist í 12 mánuði og er hægt að sækja um framlengingu í 6 mánuði. Með umsókn þarf að fylgja læknisvottorð og tekjuyfirlýsing og miðast endurhæfingarlífeyrir við að viðkomandi fari í endurhæfingu. Sjá nánar kafla 5.2. Heimilisuppbót er greidd ef viðkomandi býr einn og hefur tekjutryggingu.

11.2. Félagsþjónusta sveitarfélaga: Fjárhagsaðstoð til framfærslu. Eigi viðkomandi lögheimili í Reykjavík og er í ólánshæfu námi nemur fjárhagsaðstoðin 95.326 kr. fyrir einstaklinga sem ekki hafa lokið grunn- eða framhaldsskóla vegna félagslegra erfiðleika. Sækja þarf um tveimur mánuðum áður en önn hefst. Húsaleigubætur eru mögulegar og þá þarf að liggja fyrir þinglýstur húsaleigusamningur og viðkomandi að eiga lögheimili í bæjarfélaginu.

11.3. Lánasjóður íslenskra námsmanna: Styrkur til jöfnunar, dvalarstyrkur (dreifbýlisstyrkur), greiðist einu sinni á önn og er 106.000 kr. Nemendur á framhaldsskólastigi sem þurfa að stunda nám fjarri heimahögum og fjölskyldu geta átt rétt á jöfnunarstyrk. Ökustyrkur er 60.000 kr. Námsstyrkjanefnd úthlutar styrkjum til styrkhæfra nemenda. Umsóknir skulu berast til LÍN, Höfðaborg, Borgartúni 21, 105 Reykjavík, sími 560 4000. Sjá nánar á vefsíðu www.lin.is

11.4. Stéttarfélag: Athuga þarf hvort réttindi hafi áunnist hjá stéttarfélagi vegna veikinda eða örorku og hvort réttindi eru fyrir hendi hjá sjúkrasjóði/stéttarfélagi foreldra.

Veftré | Hafa samband