22. Stuðningshópar krabbameinssjúkra á höfuðborgarsvæðinu
1. Góðir hálsar: (stuðningshópur um blöðruhálskirtilskrabbamein). Fundir fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði kl. 17:00. Vefsíða: www.krabb.is/godirhalsar Umsjón Guðlaug B. Guðjónsdóttir, sími 540 1928.
2. Kraftur: Opnir fundir 2. og 4. þriðjudag í mánuði frá 18:00-21:00 yfir vetrarmánuðina. Stuðningssími 866 9600. Formaður Daníel Reynisson. Netfang: kraftur@kraftur.org vefsíða: www.kraftur.org
3. Ný rödd: Opið hús annan hvern mánuð yfir vetrarmánuðina. Formaður Ragnar Davíðsson. Netfang: nyrodd@krabb.is vefslóð www.nyrodd.org
4. Samhjálp kvenna: Opið hús þriðja þriðjudagskvöld í mánuði yfir vetrarmánuðina. Skrifstofutími: þriðjudaga kl. 14:30-16:30. Sími 540 1911 og sími 898 1712. Formaður Guðrún Sigurjónsdóttir. Netfang: samhjalp@krabb.is vefslóð http://www.samhjalpkvenna.org/ Sérstakir sund- og leikfimitímar eru í boði fyrir konur sem eru að ná sér eftir aðgerð og meðferð vegna brjóstakrabbameins. Leikfimin fer fram í leikfimisal og sundlaug Hrafnistu í Hafnarfirði á mánudögum og miðvikudögum kl. 16:15 undir handleiðslu Lovísu Einarsdóttur. Skráning er í síma 693 9563 og á netfanginu lovisa@hrafnista.is
5. Stómasamtökin: Fundir eru haldnir fyrsta fimmtudag hvers mánaðar kl. 20 yfir vetrarmánuðina. Formaður Jón Þorkelsson. Félagar í stjórn Stómasamtakanna skiptast á að svara í þjónustusíma samtakanna, númerið er 847 0694. Netfang: stoma@stoma.is vefslóð: www.stoma.is
6. Stuðningshópur kvenna með eggjastokkakrabbamein: Fundur síðasta miðvikudag í hverjum mánuði kl. 17:00. Umsjón Guðlaug B. Guðjónsdóttir, sími 540 1928.
7. Styrkur: Opið hús annað þriðjudagskvöld í mánuði yfir vetrarmánuðina. Skrifstofutími: fimmtudaga kl. 13:00 til 15:00. Formaður Steinunn Friðriksdóttir hs. 552 5058 farsími 896 5808. Netfang: 5525058@internet.is vefslóð: http://www.styrkur.org/