4. Skattar og opinber gjöld
Skattkorti skal skipta þegar greiðslur koma frá fleiri en einum stað. Skipta má skattkorti hjá ríkisskattstjóra Laugavegi 166, Reykjavík (http://www.rsk.is/) eða hjá næsta skattstjóra.
4.1. Skattaívilnanir. Hægt er að sækja um lækkun skatta og e.t.v. nokkur ár aftur í tímann þegar tekjur lækka skyndilega vegna veikinda. Umsókn um skattalækkun (eyðublað A nr. 3.05) skal fylgja með skattaframtali þegar sótt er um skattaívilnun vegna útgjalda (verulegur kostnaður umfram bætur og styrki). Í þessu er átt við dvalarkostnað á stofnunum, lyfja- og lækniskostnað, kostnað vegna ferða og ýmis konar sérútbúnað vegna fötlunar o.s.frv. sbr. reglur nr. 212/1996, um skilyrði fyrir ívilnun samkvæmt 66. og 80. grein laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignaskatt. Með umsókninni þurfa að fylgja ljósrituð gögn um útlagðan kostnað, læknisvottorð og greinargerð.
4.2. Fasteignagjöld. Elli og örorkulífeyrisþegar geta átt rétt á afslætti af fasteignagjöldum ef tekjur eru undir ákveðnu viðmiðunarmarki. Sótt er um afslátt af fasteignagjöldum hjá viðkomandi sveitarfélagi. Í Reykjavík er 100% lækkun hjá einstaklingum með tekjur allt að kr. 2.080.000 og hjá hjónum með tekjur allt að kr. 2.920.000. Áttatíu % lækkun hjá einstaklingum með tekjur á bilinu kr. 2.080.000 til kr. 2.400.000 og hjá hjónum með tekjur á bilinu kr. 2.920.000 til kr. 3.260.000. Fimmtíu % lækkun hjá einstaklingar með tekjur á bilinu kr. 2.400.000- til kr. 2.790.000 og hjá hjónum með tekjur á bilinu kr. 3.260.000- til kr. 3.890.000 Fjármálasvið Reykjavíkurborgar veitir upplýsingar um álagningu fasteignagjalda og breytingar á þeim í síma 411-3770. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið fasteignagjold@reykjavik.is.