Önnur félagsleg hagnýt úrræði

27. Önnur félagsleg hagnýt úrræði

27.1. Hreyfihömlun: Sótt er um P merki í bíla fyrir hreyfihamlað fólk á skrifstofu Lögreglustjóra, Borgartúni 7, Reykjavík (www.lr.is). 

27.2. Umsókn um ferðaþjónustu fatlaðra skal senda til þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar í því hverfi sem umsækjandi býr. Umsókn er hægt að nálgast umsóknareyðublöð á Rafrænu Reykjavík http://www.rvk.is/. Læknisvottorð þarf að fylgja umsókninni.

27.3. Svæðisskrifstofur fatlaðra: Námsstyrkir, styrkir til verkfæra- og tækjakaupa.

27.4. Öryrkjabandalagið: Húsnæði fyrir öryrkja.

27.5. Leikskólar: Forgangur barna krabbameinssjúklinga í leikskóla.
Börn þurfa að finna að öryggi þeirra sé ekki ógnað og að framtíð þeirra sé tryggð þrátt fyrir veikindi foreldris og koma þarf í veg fyrir að barnið verði óttaslegið. Best er að líf barnsins raskist sem minnst og að það mæti í leikskóla og skóla eins og það var vant að gera fyrir tilkomu veikindanna. Hvað á að segja barni þegar foreldri þess greinist með krabbamein og hvernig á að ræða við börnin um slíka hluti? Góð umfjöllun um þessa hluti er að finna í bæklingi sem Krabbameinsfélagið hefur gefið út og nefnist: Mamma, pabbi, hvað er að?
Mentor verkefnið vinátta, Krókhálsi 5d, sími 551 9873. Mentor verkefnið er samvinnuverkefni milli Háskóla Íslands og þeirra grunnskóla sem taka þátt í verkefninu. Mentor verkefnið gengur út á að háskólanemi gerist vinur barns og gerir eitthvað með barninu 2-4 tíma á viku. Er hugsað sem stuðningur við börn sem eru félagslega einangruð. Að launum fær háskólaneminn peningagreiðslu eða einingar í náminu.

27.6. Táknmálstúlkun: Fyrir heyrnaskerta er á vegum Samskiptamiðstöðvar heyrnalausra og heyrnaskertra www.shh.is 

27.7. Frístundir og félagsstarf. Á vegum þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar er félagsstarf fyrir fullorðna í boði víðsvegar um Reykjavík. Þjónustumiðstöðvarnar eru í sex hverfum Reykjavíkur og eru opnar alla virka daga frá kl. 8:20-16:15. Þjónustumiðstöðvarnar heyra undir þjónustu- og rekstrarsvið Reykjavíkurborgar, Ráðhúsi Reykjavíkur, sími 411 1050. Sambærilegar þjónustumiðstöðvar eru starfandi í ýmsum öðrum bæjarfélögum svo sem Kópavogi, Hafnafirði, Mosfellsbæ, Garðabæ og víðar.

Veftré | Hafa samband