Önnur endurhæfing fyrir krabbameinssjúklinga

15. Önnur endurhæfing fyrir krabbameinssjúklinga

Iðju- og sjúkraþjálfun:
15.1. Ljósið, iðjuþjálfun og endurhæfing á Langholtsvegi 43, Reykjavík (http://www.ljosid.org/) býður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra. Í Ljósinu er starfrækt handverkshús og þar er einnig í boði fjölbreytt dagskrá fyrir þátttakendur. Meðal þess sem boðið er uppá er: leirlist, sjálfstyrking, jóga, Tai chi leikfimi, slökun, gönguhópur, svæðanudd, fræðsla, aðstandendahópur og samvera.

15.2. Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands (NLFÍ) býður upp á endurhæfingu fyrir krabbameinssjúklinga. Verkalýðsfélög úti á landi greiða eða taka þátt í kostnaði fyrir sína félagsmenn ef þjónustan er ekki fyrir hendi í heimabyggð viðkomandi sjúklings. Flestir dvelja á Heilsustofnun NLFÍ í fjórar vikur. Sjá nánar á vefsíðum (http://www.hnlfi.is/ og http://www.hnlfi.is/Default.asp?Page=58). Sumir sjúkra eða styrktarsjóðir stéttarfélaga greiða styrk vegnar dvalar á NLSÍ og til dæmis greiðir styrktarsjóður SÍB kostnað vegna meðferðar á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði eða á sambærilegum stað /stofnun allt að kr. 3.000 á dag í allt að 28 daga á 12 mánaða tímabili. Skila ber frumriti reikninga þar sem kemur fram hve marga daga viðkomandi hefur dvalið og beiðni frá trúnaðar- eða heimilislækni um að viðkomandi hafi þurft á meðferðinni að halda.

15.3. Leikfimi á vegum Samhjálpar kvenna er í boði fyrir konur sem eru að ná sér eftir aðgerðir og meðferð vegna brjóstakrabbameins. Fer fram í leikfimissal og sundlaug Hrafnistu í Hafnarfirði á mánudögum og miðvikudögum kl. 16:15 undir handleiðslu Lovísu Einarsdóttur leikfimikennara. Skráning í síma 585 3162. Nánari upplýsingar fást hjá Samhjálp kvenna í síma 898 1712.

15.4. Endurhæfing á Reykjalundi stendur til boða í einstaka tilviki. Þar er allur kostnaður greiddur af TR.

15.5. Í heilsurækt Reykjalundar er hægt að taka þátt í hópþjálfun, fá ráðgjöf og aðgang að sundlaug og tækjasal. Heilsuræktin tók til starfa haustið 2003 og er fjárhagslega sjálfstæð rekstrareining á Reykjalundi. Markmiðið með rekstri heilsuræktar Reykjalundar er að veita þeim þjónustu sem eiga erfitt með að nýta sér almenn tilboð heilsuræktarstöðva. Heilsuræktin er öllum opin og greiða viðskiptavinir heilsuræktarinnar 6.500 kr. á mánuði fyrir þjónustuna. Öryrkjar og ellilífeyrisþegar fá 1.500 kr. afslátt. Innifalið í þjónustunni er hópþjálfun tvisvar í viku, ráðgjöf sjúkraþjálfara og aðgengi að tækjasal og sundlaug alla virka daga. Skráning í hópa og sala á kortum fer fram á göngudeild Reykjalundar, sem opin er mánudaga til fimmtudaga frá kl. 8.15-16.00 Netfang: gongudeild@reykjalundur.is

15.6. Einnig bjóða margar aðrar sjúkrastofnanir úti á landi upp á endurhæfingu.

Veftré | Hafa samband