10. Fólk utan af landi sem greinist með krabbamein
Umboð Tryggingastofnunar úti á landi:
10.1. Tryggingarstofnun ríkisins greiðir ferðakostnað vegna sjúkdómsmeðferðar ef viðkomandi þjónusta er ekki fyrir hendi í heimahéraði sjúklings. Læknisvottorð þarf að vera til staðar hjá TR. Þeir sjúklingar sem eru í geisla- eða lyfjameðferð á LSH en gista í íbúðum Krabbameinsfélagsins eða á sjúkrahótelinu við Rauðarárstíg eiga kost á að fá greitt fyrir leigubíla milli dvalarstaðar og LSH en þá þarf læknir að sækja um það til TR. Venjulega er greiðslukvittunum safnað saman og komið til umboðs Tryggingastofnunar í heimabyggð sjúklingsins þar sem hann fær ferðakostnaðinn endurgreiddan.
a) Í sjúkdómsmeðferð fjarri heimili í mánuð eða meira greiðist fyrir ferð heim aðra hverja helgi. Yngri en 18 ára fá greitt fyrir heimferð hverja helgi.
b) Læknir í heimahéraði getur sótt um að greitt sé einnig fyrir fylgdarmann sjúklings. Að jafnaði skal sækja um greiðsluþátttöku TR áður en ferð er farin nema um bráðatilvik sé að ræða.
10.2. Endurgreiðsla ferðakostnaðar: Við endurgreiðslu skal framvísa farseðlum ef ferð er farin með almenningsfarartækjum. Með umsókn sinni um endurgreiðslu skal sjúklingur að auki leggja fram staðfestingu á hverri komu frá þeim sem meðferðina veitir auk staðfestingar frá sjúkrahúsi um sjúkrahúslegu eftir því sem við á. Þegar um er að ræða nauðsynlegar, ítrekaðar ferðir sjúklings vegna meðferðar sbr. §3.04.03, endurgreiðir Tryggingastofnun 3/4 hluta ferðakostnaðar með leigubifreið milli aðseturs sjúklings og meðferðarstaðar samkvæmt framlögðum kvittunum, þótt vegalengd sé skemmri en 20 km. Enda sé sjúklingur ekki fær um að ferðast með áætlunarbifreið eða almenningsvagni. Ef eigin bifreið er notuð endurgreiðir Tryggingastofnun 2/3 hluta kostnaðar sem miðast við 19,35 kr. á ekinn kílómetra.
10.3. Húsnæði í boði fyrir fólk á meðan á krabbameinsmeðferð stendur: Leiga fyrir íbúðir Krabbameinsfélagsins, Rauðarárstíg 33, Reykjavík er 1.200 kr. á sólarhring. Sum verkalýðsfélög greiða fyrir dvöl félagsmanna sinna í íbúðunum. Einnig greiða flest krabbameinsfélög á landsbyggðinni fyrir fólk af sínu félagssvæði. Ef LSH sendir reikning heim til sjúklings fyrir dvölina í íbúðunum getur viðkomandi farið með reikninginn til krabbameinsfélags í sinni heimabyggð sem aðstoðar við að greiða reikninginn. Sótt er um afnot af íbúðunum á móttöku Geisladeildar LSH við Hringbraut, sími 543 6800. Þeir sem dvelja í íbúðunum eiga hugsanlega kost á að kaupa mat á Sjúkrahótelinu Rauðarárstíg 18.
10.4. Sjúkrahótelið, Rauðarárstíg 18, Rvík., sími 562 3330. Verð á sólarhring með fæði er niðurgreitt af TR og kostar kr. 800 fyrir sjúkling og 2.500 kr. fyrir aðstandandann. Erlendir ríkisborgarar greiða 5.000 kr. fyrir sólarhringinn. Flest herbergin eru tveggja manna og þarf beiðni frá lækni. Sum verkalýðsfélög greiða fyrir dvöl sinna félagsmanna á sjúkrahótelinu og einnig hafa sum krabbameinsfélög á landsbyggðinni greitt fyrir fólk á sínu félagssvæði.