Endurhæfing fyrir krabbameinssjúklinga á LSH og FSA

14. Endurhæfing fyrir krabbameinssjúklinga á LSH og FSA

Sjúklingur á rétt á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma er völ á að veita. Sjúklingur á rétt á þjónustu sem miðast við ástand hans og horfur á hverjum tíma og bestu þekkingu sem völ er á. Heilbrigðisstarfsmaður skal leitast við að koma á traustu sambandi milli sín og sjúklings. Sjúklingur á rétt á samfelldri þjónustu og að samstarf ríki milli allra heilbrigðisstarfsmanna og stofnana sem hana veita (4. grein laga um réttindi sjúklinga nr. 74/1997).
Við útskrift af heilbrigðisstofnun skal sjúklingur fá, eftir því sem þörf krefur, leiðbeiningar um þýðingarmikil atriði er varða eftirmeðferð, svo sem lyfjagjöf, mataræði, þjálfun og hreyfingu. Ef þess er óskað skulu leiðbeiningarnar gefnar skriflega. Læknabréf og vottorð vegna veikinda, slysa, sjúkrahúslegu og þess háttar skulu afgreidd án ástæðulauss dráttar (22. grein laga um réttindi sjúklinga nr. 74/1997).

14.1. Endurhæfing krabbameinssjúklinga er til húsa á fyrstu hæð (jarðhæð) LSH í Fossvogi, sími 543 9219. Endurhæfingin er niðurgreidd og þurfa sjúklingar að fá tilvísun frá lækni til að geta nýtt sér þjónustuna. Flestir eru þrjá til sex mánuði í endurhæfingu og mæta einu sinni til þrisvar í viku. Í endurhæfingunni er boðið upp á ráðgjöf, einstaklingsþjálfun, listasmiðju, slökun, fræðslu, leikfimi í sal, þjálfun í þreksal, vatnsleikfimi og meðferð við sogæðabjúg. Kynntar eru aðferðir til að takast á við streitu og kvíða, rætt um mataræði, breytta líkamsímynd, breytingar í fjölskyldu við erfið veikindi, meðferð við sogæðabjúg, gildi hreyfingar og slökunar og jafnvægi í daglegu lífi.
Verðskrá endurhæfingar:
a) Sjúkraþjálfun: Almennt komugjald í einstaklingsmeðferð er án afsláttar 2.450 kr. Fyrir endurhæfingar-, örorku-og ellilífeyrisþega er gjaldið 817 kr. Í hópmeðferð er almennt gjald 1.065 kr. og fyrir lífeyrisþega 355 kr.
b) Iðjuþjálfun: Almennt komugjald í einstaklingsmeðferð er án afsláttar 2346 kr. Fyrir lífeyrisþega er komugjaldið 782 kr. Í hópmeðferð er almennt gjald 1020 kr. og fyrir lífeyrisþega 340 kr.

14.2. Félagsráðgjöf: Á Krabbameinsdeildum LSH við Hringbraut eru starfandi félagsráðgjafar sem þjónusta krabbameinssjúklinga sem eru í læknismeðferð á LSH og fjölskyldur þeirra. Ekki er tekið gjald fyrir þjónustu félagsráðgjafa á meðan sjúklingur er í meðferð. Panta má viðtal við félagsráðgjafa í gegnum skiptiborð LSH í síma 543 1000. Félagsráðgjafar veita aðallega aðstoð varðandi réttindamál og fjölskylduráðgjöf. Einnig hafa félagsráðgjafar á krabbameinsdeildum LSH staðið fyrir opinni fræðslu fyrir sjúklinga um réttindamál. Á Lyflækningadeildum sem og öðrum deildum sjúkrahússins á Akureyri/FSA er starfandi félagsráðgjafi sem m.a. þjónustar krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra, bæði eftir aðgerð og meðan á lyfjameðferð stendur. Einnig stendur til boða eftirfylgni eftir að lyfjameðferð lýkur ef sjúklingur óskar. Félagsráðgjafi veitir persónulegan stuðning við sjúklinga sem og fjölskyldur þeirra jafnframt sem hann veitir sjúklingum og aðstandendum þeirra fræðslu og ráðgjöf m.a. vegna réttindamála. Hægt er að óska eftir þjónustu félagsráðgjafa beint í síma 463 0140 eða í gegnum hjúkrunarfræðinga/lækna á viðkomandi deildum. Ekki er tekið gjald fyrir þjónustu félagsráðgjafa við krabbameinssjúklinga og fjölskyldur þeirra.

14.3. Sálfræðiþjónusta: Á Krabbameinsdeildum LSH við Hringbraut eru starfandi sálfræðingar sem þjónusta krabbameinssjúklinga og aðstandur þeirra. Ekki er tekið gjald fyrir viðtöl á meðan sjúklingur er inniliggjandi en eftir útskrift er greitt samkvæmt gjaldskrá göngudeildar. Aðeins er greitt eitt gjald fyrir komu á göngudeild þó viðkomandi komi í viðtal hjá fleiri en einum fagaðila á LSH sama dag. Fullt komugjald á göngudeild er 2.100 kr. með afsláttarkorti 1.100 kr. Fullt gjald fyrir öryrkjar, börn og ellilífeyrisþega er 1.100 kr. og með afsláttarkorti 550 kr.

14.4. Á Akureyri er endurhæfingardeild sem tók til starfa 1991 og fer starfsemi hennar fram bæði á Kristnesspítali í Eyjafjarðarsveit og í aðalbyggingu FSA á Akureyri. Á FSA er sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun veitt á bráðadeildum en á Kristnesspítala er 20 rúma legudeild sem nýtur starfskrafta félagsráðgjafa, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara og talmeinafræðings.

Veftré | Hafa samband