Formáli
Þegar fólk veikist af alvarlegum sjúkdómi eru fyrir hendi ýmiss úrræði í samfélaginu. Fólk stendur þá oft misjafnlega að vígi hvað áunnin réttindi varðar. Lög um almannatryggingar, félagsþjónustu sveitafélaga og félagslega aðstoð eiga að tryggja að allir njóti lágmarks framfærslu. Við þessar aðstæður nýtir fólk fyrst rétt sinn á vinnumarkaði en þegar honum lýkur taka sjúkrasjóðir stéttafélaganna við. Þegar greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttafélaga falla niður geta tekið við greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins (TR) eða félagsþjónustu sveitarfélaga. Greiðslur til sjúklinga eru þannig háðar öðrum tekjum og áunnum réttindum fólks á vinnumarkaði.
Meðfylgjandi gátlisti er samantekt yfir helstu úrræði sem í boði eru fyrir krabbameinssjúklinga hjá Tryggingastofnun ríkisins, félagsþjónustu sveitarfélaga, stéttarfélögum og lífeyrissjóðum. Samantektinni er ætlað að hjálpa fólki til að fá yfirsýn yfir úrræði sem það getur hugsanlega nýtt sér við erfiðar aðstæður.
Vakin er athygli á því að sækja þarf um allar greiðslur og umsóknum þurfa að fylgja læknisvottorð og önnur umbeðin gögn. Eitt grunnvottorð frá lækni vegna umsókna fyrir sama einstakling nægir fyrir flestar bætur hjá TR. Félagsráðgjafar á Landspítala - háskólasjúkrahúsi (LSH) og á Sjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) veita sjúklingum og aðstandendur þeirra nauðsynlega ráðgjöf og stuðning við að sækja um réttindi og leiðbeina fólki varðandi gögn sem þurfa að fylgja umsóknum.
Upphæðir bóta og styrkja í eftirfarandi samantekt miðast við janúar 2009. Upphæðir bóta breytast venjulega í janúar ár hvert.
Margir krabbameinssjúklingar og aðstandendur þeirra eru kvíðnir varðandi framtíðina. Því er mikilvægt að nýta sér þá faglegu aðstoð, upplýsingar og ráðgjöf sem í boði er. Við þessar aðstæður getur verið mikil hjálp í því að fara yfir stöðu sinna mála með aðstoð fagaðila. Gagnlegt getur verið að gera sér hugmyndir um þá framtíð sem í vændum er og oft er hægt að fyrirbyggja að léttvæg vandamál valdi áhyggjum og kvíða eða jafnvel depurð og þunglyndi. Því er mikilvægt að leita sér upplýsinga og aðstoðar og fá hjálp til að skapa nýja framtíð.
Reykjavík 1. janúar 2009.
Gunnjóna Una Guðmundsdóttir
félagsráðgjafi og verkefnisstjóri hjá Krabbameinsfélagi Íslands
Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík.
Sími 540-1900, netfang una@krabb.is, vefsíða www.krabb.is/rad
Síðast breytt: janúar 2009.